Advantage er endurbætt hönnun sem tekur fram öllum öðrum körfubörum úr plasti á markaðnum.
Grindin úr ryðfríu stáli er alveg að innanverðu, með styrkleika upp á 1.134 kg, og botninn er alveg sléttur renniflötur. Ytri skel úr þéttu pólýetýleni (HDPE) er fest við efra rörið, svo aukabrúnin er alveg aðgengileg og gefur ótakmarkaða möguleika á að festa sjúklinginn við flóknustu tæknilegu björgun.
Rúmgóðar úrtökur í skelinni gefa mikið af óhindraðri efri brún til að halda í, og 22,2 mm rörin gefa þægilegra grip. Sjúklingsdýnan er úr lokaðfrumu svampi sem vökvi sígur ekki inn í og þolir jafnvel sterkustu hreinsiefni. Hún er fest þannig að fjarlægja má hana og skipta út ef þörf krefur.
Staðalbúnaður á Advantage eru einkaleyfisvarðir StratLoad™ festipunktar sem gera fljótlegt, auðvelt og öruggara að festa böruhengið og verja karabínurnar gegn veggjum, klettum o.s.frv.
| Breidd: | 60.9 cm |
| Lengd: | 215.9 cm |
| Dýpt: | 18.5 cm |
| Þyngd: | 15.6 kg |
| Litur: | Appelsínugulur |
| Hámarksburðargeta: | 11 kN/1136 kg |


















