SAGAN

Donna er leiðandi fyrirtæki í sölu á búnaði til aðhlynningar og flutnings á slösuðum. Viðskiptavinir okkar eru meðal annars sjúkrabifreiðar, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, lögregla, almannavarnir, björgunarsveitir og fleiri aðilar. Donna ehf er umboðsaðili flestra aðal framleiðanda sjúkrabúnaðar í heiminum í dag. Við höfum leitast við að bjóða aðeins viðurkenndar gæða vörur þar sem viðskiptavinir okkar verða að geta treyst þeim á ögurstund við erfiðustu aðstæður. Donna ehf var stofnuð 1974 af Ólafi Magnússyni.