Vottað lyftihengi fyrir björgunarbörur. Hengið getur lyft börunum bæði lóðrétt og lárétt. Það er auðveldlega fest við börurnar með karabínum, sem tryggja ólarnar við börurnar. Á lyftihenginu er sérstakt auga til að festa krók frá þyrlu, krana o.fl. Það ver hengið gegn skemmdum af lyftikrókum, stálvírum o.fl. Stilla má ólarnar hvorum megin fyrir sig til að ná kjörstöðu sjúklings. Geymslupoki fylgir. Lyftihengið F4181 er vottað til hífingar og vottorð fylgir. Læsanlegar stálkarabínur til festingar við lyftipunkta. Innsoðin festistöng karabínunnar kemur í veg fyrir að hún losni frá borðanum. Báða enda hengisins má stilla sjálfstætt fyrir kjörstöðu sjúklings. Ólin kemur í tveimur litum sem auðveldar rétta festingu á börurnar
Stillanlegar hífingarólar fyrir Ferno björgunarskel
111.592 kr.
Hentar fyrir flestar björgunaraðstæður
Koparhringir vel staðsettir fyrir fljótlega tengingu við stillanlegt lyftihengi, gerð 418-1
Mótaðir meiðar og handföng gera börurnar auðveldar í meðförum, jafnvel í erfiðu landslagi.
Skel úr þéttu pólýetýleni, studd af varanlega áfastri, sterkri álgrind
Lokaðfrumu svampdýna er fest inni í börunum fyrir þægindi sjúklings
Þolir efni, útfjólubláa geislun, ryð og tæringu
Viðbótareiginleikar gerðar F071S: má taka í sundur fyrir þétta geymslu eða til að bera á bakinu á björgunarstað; helmingarnir geymast hvor innan í öðrum og börurnar eru settar saman í flýti og festar með pinnum


Ekki til á lager

Sjúkrabakpoki - Statpacks G3 Responder
Statpacks G3 Breather fyrir súrefni og öndunarveg
SAM spelka - rúlla 






