Dýna – Evacuation Matress kit

170.372 kr.

Í neyðartilvikum, til dæmis þegar eldur kemur upp í byggingu, skiptir sköpum að geta rýmt fljótt einstaklinga sem komast ekki af sjálfsdáðum vegna veikinda, fötlunar eða bráðra meiðsla. EEM settið er hannað sérstaklega í þessum tilgangi og er örugg, vinnuvistvæn og notendavæn rýmingarlausn. Rýmingardýnan er hönnuð svo að fólk án sérþjálfunar geti auðveldlega notað hana, og hentar því vel fyrir skrifstofur, skóla og íbúðakjarna.

Þrjú stillanleg sjúklingabelti festa bæði stóra og smáa einstaklinga, og greinilegar ólar við höfuð- og fótenda gera kleift að rýma við hvaða aðstæður sem er. EEM dýnan byggir á reyndum aðferðum úr sjúkraflutningum og tryggir hraðan og öruggan flutning.

Rýmingardýnan kemur í hentugri tösku sem má hengja á vegg svo fljótlegt sé að ná í hana. Leiðbeiningar í töskunni tryggja að allir notendur skilji hvernig á að nota dýnuna rétt.

EEM settið er lausnin fyrir hraða rýmingu með lágmarksfyrirhöfn og hámarksöryggi.

Ekki til á lager

Vörunúmer: ge-24271060001 Flokkar: , , Merkimiðar: , Brand: