Lofttæmishryggbrettið (VSB) gefur fljótlega, þægilega og auðvelda skorðun alls líkamans við grun um hryggbrot, mjaðmagrindarbrot eða mjaðmarbrot og hjá sjúklingum með mörg beinbrot. VSB hefur framúrskarandi eiginleika við björgun úr vatni og getur hjálpað til við að koma í veg fyrir ofkælingu. Sérhannað mjaðmagrindarólakerfi stillist auðveldlega í rétta hæð yfir mjaðmagrindinni með sérstökum smellufestingum. Millistykki fylgir fyrir ferðasogdælur. Varan er samhæf segulómun og hleypir röntgengeislum í gegn. Lofttæmishryggbrettið fæst fyrir börn og í lengdunum 152, 183 og 213 cm og leggst saman í nett form þegar það er ekki í notkun. Burðartaska fylgir fyrir auðvelda geymslu. Allar ólar og lyftihandföng eru litakóðuð, þægileg og auðvelt að fjarlægja, þrífa eða skipta út. Tvískiptur 12,7 mm ventill (bandarískur/evrópskur staðall) er auðveldur í notkun með þykka hanska og auðvelt að þrífa eða skipta út.
Fjölhólfakerfi með 18 hólfum af mismunandi stærð heldur kúlunum á sínum stað, jafnvel í lóðréttri notkun. Lífstíðarábyrgð á vörunni, nema varahlutum sem eru með eins árs ábyrgð.

Nonin Flexiwrap adult plástur
Street´s taska/bakpoki fyrir heimahjúkrun
Nonin Soft sensor medium
Kendrick togspelka
TECBAG´S handtaska fyrir heimahjúkrun
CITY´S bakpoki heimahjúkrun
Ferno ólar með hraðtengi
Statpacks G3 Medslinger axlarpoki
Fingursensor barna
KEENS Nursing organizer, Red
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
Soft Shell Splint 6 pack
Pax Pro hanska- og áhaldahulstur
KEENS Nursing organizer, Green
Nonin fingur sensor fullorðins
Flexibox sjúkrakassi - án innihalds 













