Sager togspelka
Sager Bilateral togspelkan meðhöndlar brot á öðrum eða báðum neðri útlimum hjá fullorðnum og börnum frá 5. til 99. hundraðshluta. Spelkan er með liðskiptum botni sem beitir mótgripi beint á setbeinshnjóskann.
Sager spelkurnar eru líffærafræðilega og læknisfræðilega hannaðar til að veita fyrstu viðbragðsaðilum eitt fljótlegt, auðvelt, öruggt og nett togtæki. Sager Bilateral spelkurnar eru einu neyðartogspelkurnar með mælanlegu, breytilegu togi, sem tryggir rétt og öruggt tog sem getur minnkað þegar vöðvakrampinn slaknar.
Einkaleyfisvarða kerfið gerir kleift að skrá nákvæmlega hve mikið tog hefur verið beitt. Sager neyðartogspelkur haldast innan útlína líkamans hjá fullorðnum, sem gerir þær tilvaldar við flutning.
Sager spelkur eru ætlaðar til meðferðar á brotum í efsta þriðjungi og miðju lærleggs, og nýtast því mun víðar en önnur togtæki.

Infant sensor 




