Arachnipod Total Edge System 2M býður upp á framúrskarandi sveigjanleika og notagildi og er ómissandi lausn í flóknar björgunaraðgerðir og verkefni tengd iðnaði. Brúareiningin (þverslá/þverbiti) er helsti kostur þess og hentar vel til að spanna stór op, skurði, göt, námugöng, lyftustokka og önnur krefjandi umhverfi.
Brúarbitinn fæst í 2 m, 3 m eða 4 m lengd eftir þörfum hverju sinni. Brúin bætir við hliðarfærslu sem gerir kleift að vinna liðlega yfir allt vinnusvæðið, og hentar því sérlega vel við björgun úr skurðum og í þröngum rýmum. Brúarbitar eru búnir rennivagni sem einn starfsmaður getur dregið eftir bitanum, sem eykur skilvirkni og einfaldar notkun.
Uppsetningin inniheldur þrjá „Standard Legs“, einn „Pulley Leg“ og brúarbita í 2 m, 3 m eða 4 m lengd. Kerfið býður upp á þrjá festipunkta fyrir álag og fjóra stögunarpunkta.
Eiginleikar
- Ferkantaðir, stillanlegir leggir með læsipinnum
- Þrír snúanlegir augaboltar úr ryðfríu stáli sem akkerisfestingar
- Ein tvíraufa trissa úr ryðfríu stáli fyrir 8 mm stálvír og allt að 13 mm textíllínu
- Hver leggur er með festipunkti fyrir stögun
- Endurbættir Standard-fætur henta bæði sléttu og ójöfnu undirlagi, snúast eftir landslagi og eru með grófu, hálkuvörðu mynstri
- Brúarbitanum fylgir vagn, staðsetningarlína fyrir vagninn og höfuð
Innihald
- 3 × Standard Legs með álagsmetnum festipunktum sem snúast 360° auk D-lykkju fyrir stögun
- 1 × Pulley Leg með trissu fyrir allt að 13 mm trefjalínu og allt að 8 mm stál-/ryðfrítt stálvír
- 1 × brúarbiti – 2 m, 3 m eða 4 m
- 1 × Quad Plate (aukahlutur)
- 2 × fótalína og línuklemma
- 1 × flutningstaska
- 1 × brúartaska
Uppsetningarmöguleikar
- Þrífótur
- Fjórfótur (Quad Plate nauðsynleg – fylgir með)
- A-grind (festiplata nauðsynleg – seld sér)
- A-grind til hliðar (festiplata – seld sér)
- Einfótur til björgunar yfir handrið
- Brúarkerfi
Tæknilegar upplýsingar
- Hámarks innri fríhæð: 2696 mm
- Innra fótabil: 2 m kerfi 3346 × 2171 mm | 3 m kerfi 4346 × 2171 mm | 4 m kerfi 5346 × 2171 mm
- Þyngd uppsetts búnaðar: 2 m kerfi 57 kg | 3 m kerfi 64 kg | 4 m kerfi 71 kg
- Leyfilegt vinnuálag á ytri festipunkt (í hámarkshæð og á miðjum bita): 2 m kerfi 28 kN | 3 m kerfi 23 kN | 4 m kerfi 19 kN*
- Lágmarksbrotstyrkur (í hámarkshæð og á miðjum bita): 2 m kerfi 28 kN | 3 m kerfi 23 kN | 4 m kerfi 19 kN*
- Leyfilegt vinnuálag fest á legg: 2 m kerfi 220 kg | 3 m kerfi 220 kg | 4 m kerfi 190 kg
- Vottun: Vottað í 3ja og 4ra leggja uppsetningu skv. CEN/TS 16415:2013 fyrir að hámarki 2 einstaklinga og EN 795:2012 fyrir einn einstakling
* Brotstyrkur brúarbitans er breytilegur eftir því hvar álagið er staðsett á bitanum.

HEPA Filter fyrir HPA830 tæki 








