AirGenius 5 er með nýrri ifD tækni sem einkaleyfi er fyrir. Hún felur í sér að tækið notar rafmagn til að grípa agnir í rýminu og draga þær inn í tækið og að lokum inn í ifD síuna þar sem þær verða þar til sían er skoluð. Framleiðandinn segir nægjanlegt að skola síuna 4 sinnum á ári. Einnig fylgja tækinu tvær grófsíur en ákveða þarf hvor á að nota. Önnur er hefðbundin grófsía sem grípur stærri agnir í loftinu en hin er hönnuð til að draga úr lykt.
Sjá skýrslu Umhverfisráðuneytisins um hreint loft, betri heilsa. Smella hér fyrir PDF