Hugmyndafræðin
Ekki eitt tæki heldur 3 einingar
Innbyggðir tengimöguleikar, 4G, WLAN eða LAN, henta vel til fjarlækninga og samskipti við corpuls.mission
Vöktunareining
Vöktunareiningin er stjórnstöð corpuls3T. Hún vegur aðeins 2,9 kg með rafhlöðu og prentpappír, er álíka þykk og dagblað og fer vel í annarri hendi.
Á skjánum, sem er 8,4″ og einstaklega skýr, má birta allt að 6 kúrfur og 13 lífsmarkabreytur samtímis. Framsetningunni má breyta að vild, nefna hvern reit frjálst og í tilviki blóðþrýstingsmælingar án inngrips (NIBP) fylgir gæðavísir. Auk þess er hægt að prenta allt að 6 kúrfur í rauntíma.
STJÓRNHUGMYNDIN „TOUCH N’ DIAL“
Fyrir corpuls3T höfum við innleitt nýja stjórnhugmynd með það að markmiði að sameina það besta úr tveimur heimum.
Útkoman er Touch N’ DIAL:
- Annars vegar hefðbundin stjórnun með hnöppum og snúningsskífu (JogDial).
- Hins vegar stjórnun með snertingu.
Í sumum útköllum reynist önnur aðferðin áreiðanlegri en hin, og þess vegna er hugmyndin sú að tækinu sé stjórnað á besta mögulega hátt á réttu augnabliki. Þetta er líka öryggisatriði. Ef snertiskjárinn virkar ekki sem skyldi er alltaf hægt að stjórna tækinu með hnöppum og snúningsskífu (JogDial), ekki síst við endurlífgun.
EINSTAKLEGA STERKBYGGÐ SNERTITÆKNI
Snertiskjáir eru misjafnir og munurinn kemur betur í ljós eftir því sem aðstæður verða krefjandi. Því notum við nýjustu kynslóð snertistýringa. Þar með er snertiskjár corpuls3T:
- ónæmur fyrir vökva
- öruggur í notkun með einnota hönskum.
Skjárinn er auk þess vandaður og límdur (e. bonded display). Því fæst tæki með bestu mögulegu skerpu, lítið endurkast og þar af leiðandi sem best notagildi.
TÆKNILÝSING
- Allt að 6 kúrfur og 13 lífsmarkabreytur
- Forskoðun með 12 leiðslu hjartalínuriti til greiningar
- Flýtiaðgangur að mikilvægum valmyndaratriðum með 7 aðgerðahnöppum (softkeys) og virknihnöppum
- 1-2-3 stjórnun í hjartastuðsham
- Breiður prentari (106 mm) sem prentar allt að 6 kúrfur samtímis í rauntíma
- 4G-mótald, WLAN- eða LAN-tengi fyrir gagnaflutning og fjarlækningar
- Höggvörn allan hringinn
Þyngd
2,9 kg
Mál
30,5 cm (B) × 29,5 cm (H) × 12 cm (D)

PAD-PAK Rafhlaða og rafskaut fyrir hjartastuðtæki
SAM Extrema álspelka
Kendrick togspelka
BEATY hvítur/rauður
Wiz-Loc Hálskragi
CPAP/NIV maski size M
ARKY - Útiskápur fyrir hjartastuðtæki með hitun (24V)
Soft Shell Splint 6 pack
AED Plexi skápur fyrir hjartastuðtæki
Fingur sensor fullorðins
Nonin Flexiwrap plástur Neonatal/ungbarna 




