PRESTAN Professional æfingadúkkan (fullorðin kona) er hönnuð fyrir kennslu í endurlífgun og notkun hjartastuðtækja. Hún byggir á sömu hönnun og hin vinsæla PRESTAN Professional dúkka fyrir fullorðna, en með kvenlíkama. Henni er ætlað að vekja athygli á og draga úr kynjahalla í endurlífgun, en rannsóknir sýna að konur fá síður endurlífgun frá vegfarendum en karlar.
Tafarlaus endurgjöf á hnoð
Dúkkan er búin CPR-mæli sem gefur bæði nemanda og leiðbeinanda tafarlausa endurgjöf á hraða og dýpt hnoðs:
- Hraði: Tvö græn ljós loga þegar hnoðhraðinn er innan 100–120 hnoða á mínútu. Gult ljós blikkar ef farið er yfir 120 á mínútu, sem gefur nemandanum merki um að hægja á.
- Dýpt: Smellur heyrist þegar brjóstkassanum er þrýst niður í rétta dýpt, 5–6 cm.
Raunveruleg í útliti og viðkomu
- Einkaleyfisvarin höfuðhreyfing líkir eftir því hvernig höfuð sjúklings hreyfist þegar öndunarvegur er opnaður.
- Opnar nasir svo hægt er að æfa að klemma fyrir nefið við blástur.
- Andlitshlíf með lungnapoka sýnir brjóstkassalyftingu við rétta blástursaðferð. Hlífin situr föst án líms og er fljótlegt að skipta um hana milli nemenda.
- Op í hálsi hleypir lofti út svo lungnapokinn tæmist fljótt fyrir næsta blástur.
Hagnýt í kennslu
- Létt og einföld í uppsetningu.
- Uppfyllir leiðbeiningar AHA (American Heart Association) um tafarlausa endurgjöf í endurlífgunarkennslu.
- Án náttúrulegs latex.
- Varahlutir og aukahlutir fáanlegir, s.s. andlitshlífar, lungnapokar og skiptihúð.
Innihald
- 1 x PRESTAN Professional æfingadúkka, fullorðin kona, með CPR-mæli
- 10 x andlitshlífar með lungnapoka fyrir fullorðna
- 1 x burðartaska
- Leiðbeiningar
Sjá kynningarmyndband: Prestan Adult CPR Manikins with Feedback – YouTube

AED merki, 21 x 21 cm
AED Plexi skápur fyrir hjartastuðtæki
AED álskápur með viðvörunarhljóði 







