PRESTAN PRO+ æfingadúkkan fyrir fullorðna byggir á sömu hönnun og hin vinsæla PRESTAN Professional dúkka, en með nýju höfði sem gerir kennsluna enn raunverulegri.
Nýtt höfuð með virkum öndunarvegi
- Virkur öndunarvegur um bæði munn og nef.
- Hægt að æfa innsetningu nefkokstúpu (NPA) og munnkokstúpu (OPA), sem og gjöf lyfja með nefúða, t.d. með æfingabúnaði fyrir naloxón. Bera þarf sleipiefni á nefkokstúpu fyrir innsetningu.
- Brjóstkassinn lyftist aðeins þegar höfðinu er hallað rétt aftur, hakan lyft og klemmt fyrir nefið – nemandinn sér strax hvort blásturinn er réttur.
- Endurbættir lungnapokar sem fljótlegt er að setja í.
Tafarlaus endurgjöf á hnoð
Dúkkan er búin CPR-mæli sem gefur nemanda og leiðbeinanda tafarlausa endurgjöf á hnoðhraða.
Hagnýt í kennslu
- Létt og einföld í uppsetningu.
- Uppfyllir leiðbeiningar AHA (American Heart Association) um tafarlausa endurgjöf í endurlífgunarkennslu.
- Framleidd í Bandaríkjunum.
- Lungnapokar og andlitshlífar fáanleg sem rekstrarvörur.
Innihald
- 1 x PRESTAN PRO+ æfingadúkka fyrir fullorðna, með CPR-mæli
- 10 x PRO+ lungnapokar fyrir fullorðna
- Andlitshlífar
- Flýtileiðbeiningar
- Burðartaska

AED merki, 21 x 21 cm
ARKY – Útiskápur fyrir hjartastuðtæki án hita
PAD-PAK Rafhlaða og rafskaut fyrir hjartastuðtæki
LifePad® Aðstoð við endurlífgun
SAM Pelvic Sling standard
SAM spelka - rúlla
ARKY - Útiskápur fyrir hjartastuðtæki með hitun (24V)
AED CPR fylgisett með hjartastuðtæki
PowerBeat X1 kennslutæki
AED álskápur með viðvörunarhljóði
PowerBeat X3 kennslutæki
ARKY Core Classic útiskápur fyrir hjartastuðtæki
AED Plexi skápur fyrir hjartastuðtæki
Kendrick togspelka 




