Nonin WristOx2® 3150 með Bluetooth® Low Energy
Súrefnismettunarmælir á úlnlið
WristOx2 3150 með Bluetooth® Low Energy (BLE) byggir á PureSAT® SpO2 tækni Nonin og gefur hraðar og nákvæmar mælingar á súrefnismettun og púlsi, jafnvel við krefjandi aðstæður eins og lítið blóðflæði til útlima og hreyfingu. Mælirinn er samhæfður fjölbreyttu úrvali PureLight® skynjara frá Nonin og býður upp á samfellda og áreiðanlega vöktun og skráningu á SpO2. Hann hentar meðal annars til næturmælinga á súrefnismettun heima, á sjúkrahúsum og á svefnrannsóknarstofum.
Helstu eiginleikar
- Þráðlaus tenging – gögn eru flutt á öruggan og þráðlausan hátt í NoninConnect appið, sem fæst í App Store.
- Nett hönnun – lítill og borinn eins og úr, með stórum skjá og endurbættu tengi fyrir skynjara.
- Löng rafhlöðuending – allt að 44 klst. notkun á tveimur AAA rafhlöðum.
- Sérhannaðir skynjarar – WristOx2 skynjarar eru eingöngu hannaðir fyrir WristOx2 3150 mæla.
- Næturskýrslur – í boði þegar mælirinn er notaður með nVISION® gagnastjórnunarhugbúnaði Nonin.
- Öruggur gagnaflutningur – gögn má einnig flytja á öruggan hátt í nVISION® um USB-tengingu.
- Minni smithætta – einnota fylgihlutir fáanlegir til að draga úr útsetningu fyrir smitefnum og krosssmiti.
- Staðfesting gagna – MVI-hamur (Memory Volume Indicator) sýnir myndrænt í klukkustundum og mínútum að nægilegt magn gagna hafi verið skráð við mat á súrefnisþörf eða í svefnrannsókn yfir nótt.
- Aukið minni – 1.080 klst. varanlegt minni miðað við fjögurra sekúndna mælitíðni, auk möguleika á háupplausnarskráningu á einnar eða tveggja sekúndna fresti.
- Sannreynd ending – traust hönnun og smíði, með 3 ára framleiðandaábyrgð.
Tvær útfærslur
- Stakur mælir – skynjari að eigin vali og úlnliðsól.
- Byrjendapakki – skynjari að eigin vali, þrjár úlnliðsólar, burðartaska, USB-gagnasnúra og nVISION® hugbúnaður.
Einfaldari næturmælingar með Nonin Health®
WristOx2® 3150 BLE vinnur með Nonin Health®, öruggum skýjalausnarvettvangi sem veitir fjaraðgang að mæligögnum um súrefnismettun. Vettvangurinn er hannaður til að einfalda og flýta fyrir næturmælingum: með færri handvirkum skrefum fá svefnsérfræðingar og heimaþjónustuaðilar niðurstöður um leið og sjúklingur lýkur mælingu, geta haldið utan um tækjabirgðir og eytt minni tíma í verk sem ekki fást greidd. Helstu notkunarsvið eru forskimun fyrir svefntengdum öndunartruflunum, eftirlit með meðferð við kæfisvefni, stilling bitgóma (munnhlífa), mat á þörf fyrir súrefnismeðferð og endurmat.
Samþætting við EnsoSleep PPG™
WristOx2® 3150 er samþættur EnsoSleep PPG™ frá EnsoData™, sem nýtir gervigreind við greiningu á kæfisvefni í svefnrannsóknum í heimahúsi. Lausnin er nákvæm, hagkvæm og sveigjanleg viðbót við hefðbundnar svefnrannsóknir sem eykur skilvirkni greiningar og bætir aðgengi að þjónustu.
Fylgihlutir
| Lýsing | Vörunúmer |
|---|---|
| Einnota fylgihlutir fyrir WristOx, fullorðnir (15 stk. í kassa) | 114238-001 |
| WristOx burðartaska | 4294-000 |
| WristOx USB-tengisnúra fyrir tölvu | 7703-001 |
| Stillanleg úlnliðsól | 8911-001 |
| Einnota úlnliðsól | 114241-001 |
Samhæfðir skynjarar
Mælirinn er samhæfður 8000A skynjurum og öðrum WristOx2 skynjurum frá Nonin. Hafðu samband við okkur til að finna réttan skynjara fyrir þína sjúklinga.

Braun Pulsoximeter 1 súrefnismettunarmælir 













