Öndunarvél – Weinmann – MeduVent Standard Turbine
Í neyðaraðstæðum getur hver sekúnda skipt máli. MeduVent Standard er hannað til að einfalda og flýta fyrir upphafi öndunarstuðnings með leiðandi valmyndum, neyðarstillingum og sjálfvirkum upphafsstillingum sem miðast við hæð sjúklings. Þetta gerir notendum kleift að hefja meðferð hratt, örugglega og í samræmi við viðurkenndar verklagsreglur, þannig að sjúklingur fái nauðsynlega umönnun án tafar.
MeduVent vélin er aðeins 2.1kg á þyngd, með rafhlöðuendingu í um 8klst og fer úr 0% í 95% á einungis 2.5klst í hleðslu. Þökk sé þessari hönnun telst MeduVent meðal minnstu, léttustu og öflugustu neyðar- og flutningsöndunarvéla á markaðnum í sínum flokki.


Wiz-Loc Hálskragi
Macintosh Conventional Laryngoscope blað - Mac 2
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
Diabetic´s veski fyrir sykursýkisbúnað - tvítóna svart
Statpacks G3 Breather fyrir súrefni og öndunarveg
Pax Pro hanska- og áhaldahulstur
SAM Medical fingurspelka 









