Beaty fyrir hjartahnoð – hnoðdoppan sem eykur gæði hjartahnoðs

Donna ehf. er með til sölu Beaty CPR Feedback Device.  BEATY er notað við endurlífgun þegar um skyndilegt hjartastopp er að ræða.  Það eykur skilvirkni við  hjartahnoð.  BEATY er komið fyrir á milli lófa handar og á miðjan brjóstkassann.  Þegar réttri hnoðdýpt er náð þá gefur BEATY hljóðmerki. Hnoðdýpt skiptir máli til að koma á blóðflæði til heilans og draga úr líkum á varanlegum skemmdum.

Staðreyndir um skyndilegt hjartastopp

Skyndilegt hjartastopp er það kallað þegar hjartað hættir skyndilega að dæla af krafti vegna bilunar á leiðnikerfi hjartans.  Langflest hjartaáföll verða utan sjúkrahúsa og lífslíkur eru innan við 10% (erlendis).  Hægt er að tvö eða þrefalda þær ef hjartahnoði er beitt strax.  Víða um heim er átak í gangi að fræða fólk um mikilvægi hjartahnoðs. 

Í núverandi leiðbeiningum evrópska endurlífgunarráðsins, þar sem Endurlífgunarráð Íslands er aðili að, er lögð áhersla á mikilvægi skjótrar greiningar á skyndilegu hjartastoppi og framkvæmd hjartahnoðs.  Ákjósanlegur hraði er 100 -120 hnoð á mínútu og dýpt hnoðsins um 5 cm og ekki meira en 6 cm. Tilgangurinn með hjartahnoði er að koma á blóðflæði til heilans og þar með koma í veg fyrir varanlegar skemmdir.  Komið hefur í ljós að hjartahnoð eingöngu hefur jafnmikil áhrif og hefðbundin endurlífgun með hnoði og blæstri.  Markmið margra rannsókna var að meta gæði endurlífgunar og eftirfylgni með leiðbeiningum um endurlífgun.  Oftar en ekki var hnoðdýpt ófullnægjandi.  Erfitt er að finna rétta hnoðdýpt (5-6 cm) og jafnvel fyrir þjálfaða bráðaliða.  BEATY hjálpar viðbragðsaðila og veitir endurgjöf um hnoðdýptina.

BEATY má ekki nota á börn yngri en 8 ára eða sjúklinga sem sýna svörun og lífsmörk.