Vorum að fá í hús nýja sendingu af viðvörunarljósum og vinnukösturum fyrir ökutæki frá Lap Electrical. Margar vörutegundir eru nýjar af nálinni.
Auka viðvörunarljós
Tvær nýjar gerðir af þunnum LED leifturljósum eru þarna á meðal. Annars vegar KLED og hins vegar HLED. Hvoru tveggja eru með IP69K þéttivörn og eiga að þola m.a. háþrýstiþvott. Einnig eru þau með 2 ára ábyrgð. Þau fást með 3, 4 eða 6 – 3W perum.
Strolux ljóskastarar
Strolux ljóskastarar með 5W Osram Led perum í álhúsi. Tvöföld röð af Led perum. Þeir koma í fjórum lengdum 70, 200, 357 og 561 mm. Lúmens styrkurinn er frá 800 til 7000 eftir gerðum.
- Sterk polycarbonate linsa/gler
Comet ljósabogar
Flottir ljósabogar á atvinnuökutæki. Koma vel út á þakinu enda þunnir og mjóir. Aðeins 122mm á breiddina og 30mm á hæðina. Fást í fjórum lengdum.
Ljósakúpull og minni ljósbogar
Endurhlaðanlegur ljósviti með allt að 4 tíma endingu og festist með segli. Einnig vorum við að fá tvær nýjar gerðir af litlum ljósbogum.