Glænýtt lofthreinsitæki frá Honeywell

Lofthreinsitæki Honeywell HPA830E

Nýtt og fallega hannaða turnlaga lofthreinsitæki með True HEPA filter.  Sómir sér vel á hverju heimili.  Tækið er með VOC skynjara sem stöðugt metur loftgæðin. Tækið varpar ljósi í lit á gólfið allt eftir loftgæðum en í því eru 3 litakóðar. Tækið bregst við í samræmi við mælingar skynjarans. 

Tækið skapar ákjósanleg loftgæði fyrir svefn með hjálp UltraQuiet tækninnar, svefnstillingar og Essential olíubakkans sem er valkvætt fyrir ilmmeðferð.

Þessi skilvirka hönnun og síun getur skapað hringrás og hreinsað andrúmsloft í herbergjum allt að 87 fermetrum.  Vottaðir True HEPA filterar geta gripið allt að 99,97% af ögnum og allt niður í 0,3 micron.  Kolafilterinn í tækinu grípur þær stærri og um leið dregið úr lykt. 

Hjálpar þér að anda af sjálfsöryggi.

Skoða vöru

Ný viðvörunarljós og ljóskastarar

Ljóskastari lap electrical

Vorum að fá í hús nýja sendingu af viðvörunarljósum og vinnukösturum fyrir ökutæki frá Lap Electrical.  Margar vörutegundir eru nýjar af nálinni.  

Auka viðvörunarljós

Tvær nýjar gerðir af þunnum LED leifturljósum eru þarna á meðal.  Annars vegar KLED og hins vegar HLED.  Hvoru tveggja eru með IP69K þéttivörn og eiga að þola m.a. háþrýstiþvott.  Einnig eru þau með 2 ára ábyrgð.  Þau fást með 3, 4 eða 6 – 3W perum.  

Strolux ljóskastarar

Strolux ljóskastarar með 5W Osram Led perum í álhúsi. Tvöföld röð af Led perum.  Þeir koma í fjórum lengdum 70, 200, 357 og 561 mm.  Lúmens styrkurinn er frá 800 til 7000 eftir gerðum.  

  • Sterk polycarbonate linsa/gler

Comet ljósabogar

Flottir ljósabogar á atvinnuökutæki.  Koma vel út á þakinu enda þunnir og mjóir. Aðeins 122mm á breiddina og 30mm á hæðina.  Fást í fjórum lengdum.  

Ljósakúpull og minni ljósbogar

Endurhlaðanlegur ljósviti með allt að 4 tíma endingu og festist með segli.  Einnig vorum við að fá tvær nýjar gerðir af litlum ljósbogum.  

 

Viðvörun um ónákvæma hitamæla

Getty Images

Samkvæmt frétt BBC hafa bresk heilbrigðisyfirvöld varað við notkun ónákvæmra hitamæla.  Eitthvað hefur verið af þeim í umferð en allir viðurkenndir mæla eiga að vera með CE merkingu.  Hana er yfirleitt að finna á mælinum sjálfum eða á pakkningu.

Allir hitamælar hjá okkur eru með CE merkingu.

Sjá frétt BBC