Björgun 2026

Við hjá Donnu tókum þátt í Björgun 2026 í Hörpu 16-17. október. Básinn vakti mikla athygli og fengum marga góða gesti. Sérfræðingar frá Corpuls, Ferno Norden og Medtech Sweden tóku þátt með okkur og kynntu vörur fyrir björgunarsveitarfólki og öðrum gestum. Meðal fjölmargra vörunýjunga hjá okkur voru sýndar Corpuls Auryx – Veðurþolinn hita, mettunar og púlsskynjari í eyra, Vivest Pocket 700gr hjartastuðtæki með vöktunarham fyrir sjúkraflutningsfólk, MedTech Lofttæmdar hryggspelkur og kragar, fisléttar Tyrol björgunarbörur frá Ferno, Clesana ferðasalerni, nýjasta töskulínan frá Statpacks og nýju vatnsheldu Nanuk sjúkra- og tækjatöskurnar sem voru að koma til landsins.🚁 🚑 ⛑️