Minningarsjóður Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhenti Björgunarsveitinni Kyndli á Kirkjubæjarklaustri þrjú loftdýnusett til að auðvelda sveitinni störf á vettvangi slysa. Eftir hörmulegt slys við Núpsvötn í desember þar sem þrír létust kallaði liðsmaður Kyndils eftir betri búnaði til að bregðast við alvarlegum slysum sem þessum.
„Það þarf einhvern veginn að útvega fjármagn í að hérna sé meiri búnaður til staðar, það er bara þannig. Það eru gríðarlega margir sem fara hérna um og vegalengdirnar eru svo miklar. Það má eiginlega ekkert vanta. Það líður töluverður tími þangað til að þyrlurnar koma og þá þurfum við, þetta fáa fólk sem er hér í þessari viðbragðsstöðu að hafa aðgang að góðum búnaði,“ sagði Björn Helgi Snorrason björgunarsveitarmaður í samtali við Mbl.is daginn eftir slysið.
Í tilkynningu frá minningarsjóðum segir að loftdýnusettin séu frá Germa AB og dýnurnar hannaðar til að tryggja hámarksstöðugleika á ferð fyrir slasaða sjúklinga.
Jenný Lilja lést af slysförum á bænum Einholti í Biskupstungum þann 24. október árið 2015 en hún var þriggja ára gömul.
Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Fjallabyggð gaf björgunarsveitunum Tindi í Ólafsfirði og Strákum á Siglufirði sitthvort hjartastuðtækið sem Donna er með til sölu. Einnig fengu björgunarsveitirnar sitthvoran bakpokann sem eru sérhannaðir til að bera sjúkrabúnað og hjartastuðtæki, hjartastuðtækin eru frá HeartSine og bakpokarnir frá StatPacks.
Skjöldur hefur þegar gefið 5 hjartastuðtæki til stofnana og fyrirtækja í Fjallabyggð, að auki er eitt tæki í Kiwanishúsinu. Hugmynd klúbbsins er að kortleggja staðsetningu tækja sem þessara í Fjallabyggð og merkja staðsetningu þeirra inn á götukort og dreifa meðal íbúa. Tækin verða því aðgengileg fyrir íbúa eða gesti þeirra komi upp áföll.
Þetta framtak Skjaldar er til fyrirmyndar því komi til neyðartilfella geta skjót viðbrögð og réttur búnaður bjargað lífi.

Vorum að fá plástraskammtara í hús og sömuleiðis áfyllingar fyrir þá. Samtals eru 40 tauplástrar eru í hverri einingu og skipt niður í tvær stærðir. Annars vegar 24 stk. 72 mm x 19 mm og hins vegar 72 mm x 25. Nánari upplýsingar má finna hér i hlekknum: https://donna.is/products/saramedferdir
Donna hefur selt Aluform og Seabear báta frá Maritime Partner í fjölda ára.
Maritime Partner framleiða báta af mörgum stærðum og til ýmissa nota.
- 1
- 2

Trömer Hamar BlackOut
Goniometer (hornamælir) -12" 360° - Margnota
LAP LED ljósviti - 3ja punkta - 10-110V
Metal Max‚™ 90 Green System Laryngoscope Blade - MAC 1
Sogleggir - Suction Catheters 14FR - Y með ventli
NOSA menthol plugs 7-pack
MEDIC veski undir lækningaáhöld dagsins - svört
Flex-Tip® Cuffed Endotracheal Tubes with Preloaded Stylet
Statpacks G3 Medslinger axlarpoki
PAD-PAK Rafhlaða og rafskaut fyrir hjartastuðtæki
Vatnsþolnir plástrar - 25 stk. í pakka
Nemi fyrir súrefnismettun - einnota fullorðins
Nonin - Neonatal sensor
Sinto sjúkrakassi
Saumatökuskæri 13 sm
Þrýstiminnkari 0-15 ltr. - Oxyway Fast - Weinmann
MD One® Premium Dual Head svört
Blástursbelgur Child 600 ml maski 0,1,2
Viðvörunarljós gult - HLED 6LED - IP69K
Kangaroo Bag XL
Honeywell Granular Carbon Filter fyrir HPA710 lofthreinsivél
Adsafe CPR Face Shields í lyklakippuhylki - munn við munn maskar
SAM Sling Small 39 - 114 cm
Braun - snertilaus ennishitamælir
Elitebags FAST´S taska læri eða Molle – Rauð 

