Nýr birgir – Viðvörunarljós og sírenur frá Redtronic

SB2148SCB-redtronic-ljósabar

Ljós í ýmsum litum

Við höfum hafið sölu á viðvörunarljósum og tengdum búnaði frá Redtronic í Bretlandi. Redtronic hefur framleitt viðvörunarljós og sírenur á ökutæki í 37 ár. Síðasta áratuginn hefur fyrirtækið hugað meir að sölu á alþjóðavísu. Í dag erum dreifingar- og söluaðilar í 42 löndum.

Lykillinn að auknum vexti Redtronic er vöruþróun, afbragðsþjónusta, stuttur afgreiðslutími, samkeppnishæft verð og áreiðanlegar vörur. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru virkir þátttakendur í vöruþróuninni til að tryggja að útlits- og tæknihönnun samrýmist eða fari fram úr kröfum markaðarins.

Vörurnar eru allar framleiddar í Bretlandi og þrautprófaðar til að tryggja gæði og áreiðanleika.

Redtronic er einnig þekkt fyrir sérsníða ljós eftir óskum viðskiptavinarins. Í dag framleiðir Redtronic alla ljósaboga eftir óskum til að auka sveigjaleika. Allar vörur er hægt að fá eftir óskum viðskiptavinarins.

Led perur er hægt að fá með einum lit eða fleirum. Hægt er að fá fleiri en einn lit í hvert ljós. Einnig er hægt að velja mismunandi liti á dreifiglerið eða hafa það glært. Margir tengimöguleikar og ljósamynstur í boði.

Verð á vörum frá Redtronic eru samkeppnishæf og yfirleitt betri en frá Evrópskum og Bandarískum framleiðendum.

Redtronic uppfyllir alla helstu gæðastaðla og vottanir.

  • ISO 9001:2015
  • DEKRA speed tests
  • UN ECE R10 EMC
  • UN ECE R65