Germa – EasyFix PLUS II Ready2Go grjónadýna

0 kr.

Germa EasyFix PLUS II er lofttæmanleg grjónadýna sem byggir á áratuga þróun og vönduðum efnum. Ný hönnun sem fylgir líkamslögun skorðar betur, tekur 20% minna geymslupláss en hefðbundnar dýnur og gefur betri festu á efri hluta baks og háls án hálskraga. Styrktur botn og X-ólakerfi tryggja örugga skorðun.

Ready2Go-settið er tilbúið til notkunar: dýna, ólakerfi, fótpumpa, viðgerðarsett og burðarpoki.

  • Burðargeta 250 kg
  • 5 handföng á hvorri hlið
  • Lengd 208 cm, breidd 130 cm við höfuð og 72 cm við bol
  • Vottuð samkvæmt EN 1865 og EN 1789
  • Lækningatæki í flokki I samkvæmt MDR 2017/745
  • 3 ára ábyrgð

Ekki til á lager