Transcend™ PowerTraxx® veitir notendum og sjúklingum hámarksöryggi og afl við flutning upp og niður stiga. Rafstýrður mótor Transcend™ PowerTraxx með beinu drifi knýr beltin og ber auðveldlega sjúklinga allt að 250 kg upp og niður stiga. Rafhlaðan hefur mjög mikla rýmd og dugar án vandræða á 24 klst. vakt (að meðaltali 40 stigar upp og niður). Mjúk og stór 12×3 cm snúningshjól að framan og sérstaklega stór 20×4 cm hjól að aftan, með innbyggðum höggdeyfandi dekkjum, gera auðvelt að fara yfir ójafnt undirlag. Slétt hjólin safna litlu rusli og auðvelt er að halda þeim hreinum. Transcend™ PowerTraxx® tekur lítið pláss samanbrotinn og engir hlutar standa út sem geta fest sig þegar hann er tekinn inn og út (mál samanbrotinn: 912 x 507 x 200 mm). Í samanbrotinni stöðu er stóllinn læstur, svo meðhöndla má hann án þess að hann opnist.
Transcend™ PowerTraxx® er með lyftihandfangi sem stilla má í 5 stöðum, sem gefur hámarksstjórn og bestu vinnustellingu fyrir notendur af mismunandi hæð. Þráðlausa fjarstýringin virkar í hvaða stöðu sem er. Innbyggð rafræn hraðastýring takmarkar hraðann á leið niður við öruggt og viðráðanlegt stig. Mikil hæð frá gólfi gefur mjúkan flutning yfir teppi og ójafnt undirlag. Fótahvílan er lengd og með betra horni, sem eykur þægindi sitjandi sjúklings með langa fætur. Sætið er stórt og breitt með lausum plötum sem auðvelda þrif. Útdraganleg burðarhandföng að aftan eru með sérstöku horni sem gefur betri vinnustellingu við að meðhöndla og bera stólinn.
Þyngd: 23.3 kg
Dýpt: 76 /135 cm
Hæð: 151.8 / 90.8 cm
Breidd: 50.5 cm

Sager togspelka
Pax Pro hanska- og áhaldahulstur
Medimulti sjúkrakassi án innihalds
Wiz-Loc Hálskragi
Water Rescue Tube - björgunarsveigur
Nonin - Neonatal sensor
Universal slysaskæri
Nonin Flexiwrap adult plástur
SAM Extrema álspelka
S-CUT beltahnífur
SAM spelka - rúlla
SAM Pelvic Sling Large - Mjaðmaspelka 91-152 cm
Spiderstrap Xpider m. plastlásum
Infant sensor
Ferno Compact 2 stigastóll með beltum - samanbrjótanlegur
Ferno SCOOPEXL™ skröpur
Nonin fingur sensor fullorðins 













