Arachnipod Quadpod er sterkbyggt og fjölhæft kerfi sem mætir kröfum flókinna björgunaraðgerða og verkefna tengd iðnaði.. Það er búið tveimur Standard Legs og tveimur Pulley Legs, sem veitir betri álagsdreifingu og aukinn stöðugleika í mikilvægum verkefnum.
Sérhannaður höfuðbúnaður Arachnipod gerir kleift að aftengja leggina hratt svo þeir liggi flatir – það sparar pláss í geymslu og einfaldar flutning. Hver leggur er búinn endurbættum Standard Foot 2 fæti sem eykur grip og stöðugleika á ólíku undirlagi.
Eiginleikar
- Ferkantaðir, stillanlegir leggir með læsipinnum
- Tveir snúanlegir augaboltar úr ryðfríu stáli sem akkerisfestingar
- Tvær tvíraufa trissur úr ryðfríu stáli fyrir 8 mm stálvír og allt að 13 mm textíllínu
- Hver leggur er með festipunkti fyrir stögun
- Endurbættir Standard-fætur henta bæði sléttu og ójöfnu undirlagi, snúast eftir landslagi og eru með grófu, hálkuvörnu munstri
Innihald
- 2 × Standard Legs með álagsmetnum festipunktum sem snúast 360° auk D-lykkju fyrir stögun
- 2 × Pulley Legs með trissu fyrir allt að 13 mm textíllínu og allt að 8 mm stál-/ryðfrítt stálvír
- 1 × Quad Plate (aukahlutur)
- 1 × fótalína og línuklemma
- 1 × flutningstaska
Uppsetningarmöguleikar
- Þrífótur
- Fjórfótur (Quad Plate nauðsynleg – fylgir með)
- A-grind (festiplata nauðsynleg – seld sér)
- A-grind til hliðar (festiplata – seld sér)
- Einfótur til björgunar yfir handrið
Tæknilegar upplýsingar
- Hámarks innri fríhæð fjórfótar: 2671 mm
- Innra fótabil: 2551 × 2171 mm
- Þyngd uppsetts búnaðar: 37 kg
- Leyfilegt vinnuálag á ytri festipunkt: 400 kg í hámarkshæð
- Lágmarksbrotstyrkur: 40 kN
- Leyfilegt vinnuálag fest á legg: 220 kg
- Vottun: Vottað í 3ja og 4ra leggja uppsetningu skv. CEN/TS 16415:2013 fyrir að hámarki 2 einstaklinga og EN 795:2012 fyrir einn einstakling

Braun Digital Thermometer
Sáraböggull 14 - sæfður í lofttæmdum umbúðum
MiniMedicut® Hjúkrunarskæri, 5 og 1/2″, Adimals mynstur
Braun eyrnahitamælir THERMOSCAN 7+
SAM Medical fingurspelka
Eyrnaslíður fyrir Braun IRT Thermocan
Braun AgePrecision hitamælir
Kendrick togspelka
Soft Shell Splint 6 pack
Braun ThermoScan® PRO 6000 Eyrnahitamælir
Wiz-Loc Hálskragi
Pax Pro hanska- og áhaldahulstur
Braun ThermoScan 7+ Connect, eyrnahitamælir, samhæfður Family Care appinu
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
Sager togspelka
Braun - snertilaus ennishitamælir
Universal slysaskæri
Pax ljósa- og áhaldahulstur
Responder Jr. hulstur
Kangaroo Bag XL
Statpacks G3 Breather fyrir súrefni og öndunarveg
Statpacks G3 Oxygen Module
Water Rescue Tube - björgunarsveigur 











