NANUK 915 vatnshelda harðtaskan er tilvalin til að skipuleggja, verja og flytja sjúkragögn og skyndihjálparbúnað. Hún er vatnsheld og nær óbrjótanleg, með léttri og sterkri skel úr resíni og tvöföldu PowerClaw Superior læsingakerfi að framan. Með einstöku læsingakerfi NANUK helst taskan lokuð og örugg þar til þú ákveður að opna hana.
Skyndihjálparsett í fullu lagi getur skipt sköpum í ýmsum neyðaraðstæðum. Ímyndaðu þér versta tilfellið: þú þarft á skyndihjálparsettinu að halda og kemst að því að það er blautt eða skemmt!
Þetta má auðveldlega forðast með nýju NANUK 915 vatnsheldu skyndihjálpartöskunni. NANUK 915 er nær óbrjótanleg, létt og vatnsþétt og búin einkaleyfisvarða PowerClaw Superior læsingakerfinu frá NANUK.
Hún heldur skyndihjálparsettinu þínu (selt sér) öruggu og þurru í tösku sem er hönnuð og framleidd samkvæmt ströngum hernaðarstöðlum og fer fram úr kröfum kröfuhörðustu notenda.
Ekki bíða þar til það er orðið of seint. Settu skyndihjálparsettið þitt í NANUK 915 skyndihjálpartösku og njóttu öryggisins.
Hentar vel fyrir báta, bíla, jeppa, fyrstu viðbragðsaðila, björgunarsveitir, sjúkraflutninga, lögreglu, slökkvilið, her, útilegur, fyrirtæki, skóla, vinnuvélar og almennan neyðar- og hamfaraviðbúnað. NANUK 915 skyndihjálpartaskan flýtur líka á vatni.
Nanuk 915 skyndihjálpartaskan er með vinnuvistvænu handfangi með mjúku gripi sem gerir hana auðvelda í flutningi.
Hún er með festingum úr ryðfríu stáli og innbyggðri handfangsstoð sem verndar handfangið á ferðalögum og í flutningi. Taskan er einnig búin sjálfvirkum þrýstijöfnunarventli og innbyggðu rammakerfi fyrir sérsniðnar plötur. Því þarf ekki að bora göt í hana og hún helst vatnsþétt.
Taskan er sprautusteypt samkvæmt hernaðarstöðlum (MIL-Spec) og henni fylgir lífstíðarábyrgð.
Innanmál: L351 mm x B236 mm x H157 mm
Utanmál: L391 mm x B307 mm x H173 mm
Þyngd (tóm): 2 kg
Rúmmál: 13 lítrar
Hitaþol: lágm. -55 °C / hám. 70 °C
IP67: Vatns- og rykþétt
Lífstíðarábyrgð

Sjúkrakassi (tómur) - Flexibeauty
Nonin PalmSat 2500 - súrefnismettunarmælir 

















