Ef þú værir að hanna hina fullkomnu vatnsheldu hlífðartösku sem kemst hvert sem er og ræður við hvað sem er, þá veðjum við á að þú myndir byrja á NANUK 935.
Þetta vörunúmer er með skipulagshólfum í lok en svamplögum í botni sem auðvelt er að aðlaga að ýmis konar innihaldi s.s. viðkvæmum tækjabúnaði eða öðrum verðmætum.
Þrjú mjúk handföng gera þessa tösku á hjólum eina þá þægilegustu á markaðnum, en það er bara byrjunin. Pólýúretan-hjólin þola ójafnt undirlag, og útdraganlega handfangið, sem má stjórna með annarri hendi, gerir töskuna auðvelda og fjölhæfa í notkun. Sama hvert ferðinni er heitið geturðu treyst á þægilegt og vandræðalaust ferðalag.
Hönnuð til að skipuleggja, verja, bera og standast erfiðar aðstæður: vatnshelda harðtaskan NANUK 935 tekur höggin svo búnaðurinn þinn þurfi þess ekki.
Hún er óbrjótanleg og nánast ógerlegt að komast inn í hana, með léttri en sterkri skel úr NK-7 resíni, og PowerClaw-læsingakerfið veitir þér hugarró sem á sér enga hliðstæðu. Með einstöku læsinga- og lokunarkerfi NANUK helst taskan lokuð og örugg þar til þú ert tilbúin(n) að opna hana.
Taskan er 56 x 36 x 23 cm og rúmar því heilmikið af nauðsynlegum búnaði, en má samt taka sem handfarangur hjá flestum flugfélögum.
Hlífðartaskan NANUK 935 er þægileg í notkun, jafnvel þegar hún er full af búnaði og þung. Þú ýtir einfaldlega á hnappinn, útdraganlega handfangið lengist í aðra af tveimur stillingum og NANUK 935 er tilbúin til að rúlla á áfangastað með ljósmyndabúnað, myndbandsbúnað, hljóðbúnað, lækningatæki, iðnaðarbúnað, útivistarbúnað, persónulega muni og margt fleira örugglega innanborðs.
Tvö handföng 935 eru með festingum úr ryðfríu stáli og leggjast snjallt að töskunni svo þau verði ekki fyrir hnjaski á ferðalögum eða í flutningi.
Taskan er jafnframt búin sjálfvirkum þrýstijöfnunarloka og innbyggðu rammakerfi fyrir sérsniðnar plötur, svo ekki þarf að bora göt og taskan helst vatnsheld.
Þessi sprautusteypta taska, sem stenst MIL-Spec hernaðarstaðla, er með lífstíðarábyrgð. Að innan má festa búnaðinn með teningaskornum svampi, sérsniðnum svampi eða bólstruðum milliveggjum.
Helstu eiginleikar:
Ytri mál (L x B x H): 559 x 356 x 229 mm
Innri mál (L x B x H): 521 x 287 x 191 mm
Rúmmál: 28,5 L
Þyngd (tóm): 5,3 kg
Dýpt loks: 2,1 tomma | 53 mm
Dýpt botns: 137 mm
Hitaþol: Lágmark -55 °C (-67 °F) | Hámark 70 °C (158 °F)
Hámarksflotgeta: 26,4 kg
Göt fyrir hengilás: 8,6 mm
Efni: Létt NK-7 resín
Leyfð sem handfarangur í flugi
Helstu vottanir:
MIL-STD-810F – Þolir niðurdýfingu
ASTM D-4169 DC-18 – Regnprófun
ASTM D-4169 DC-18 – Titringsprófun
ASTM D-4169 DC-18 – Fallprófun
ATA Specification 300 – Höggþol, flokkur 1
IP6X vörn gegn innkomu – Rykheld
IPX7 vörn gegn innkomu – Vatnsheld

Ferno F-445 höfuðpúðar fyrir bakbretti 























