Frábær lausn fyrir myndavélar, linsur, dróna, veiðivörur eða annan verðmætan búnað. Auðvelt að raða hólfu og ströppum á mismunandi hátt eftir því hvert innihaldið er.
Ef þú værir að hanna hina fullkomnu vatnsheldu hlífðartösku sem kemst hvert sem er og ræður við hvað sem er, þá veðjum við á að þú myndir byrja á NANUK 935.
Þrjú mjúk handföng gera þessa tösku á hjólum eina þá þægilegustu á markaðnum, en það er bara byrjunin. Pólýúretan-hjólin þola ójafnt undirlag, og útdraganlega handfangið, sem má stjórna með annarri hendi, gerir töskuna auðvelda og fjölhæfa í notkun. Sama hvert ferðinni er heitið geturðu treyst á þægilegt og vandræðalaust ferðalag
Hönnuð til að skipuleggja, verja, bera og standast erfiðar aðstæður: vatnshelda harðtaskan NANUK 935 tekur höggin svo búnaðurinn þinn þurfi þess ekki.
Hún er óbrjótanleg og nánast ógerlegt að komast inn í hana, með léttri en sterkri skel úr NK-7 resíni, og PowerClaw-læsingakerfið veitir þér hugarró sem á sér enga hliðstæðu. Með einstöku læsinga- og lokunarkerfi NANUK helst taskan lokuð og örugg þar til þú ert tilbúin(n) að opna hana.
Þessi sprautusteypta taska, sem stenst MIL-Spec hernaðarstaðla, er með lífstíðarábyrgð. Að innan má festa búnaðinn með teningaskornum svampi, sérsniðnum svampi eða bólstruðum milliveggjum, en einnig er hægt að kaupa töskuna tóma.
Vottanir:
ATA Specification 300 – Höggþol, flokkur 1
IP6X vörn gegn innkomu – Rykheld
IPX7 vörn gegn innkomu – Vatnsheld
MIL-STD-810F – Þolir niðurdýfingu
ASTM D-4169 DC-18 – Regnprófun
ASTM D-4169 DC-18 – Titringsprófun
ASTM D-4169 DC-18 – Fallprófun

Ferno F-445 höfuðpúðar fyrir bakbretti
Sager togspelka
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
Medimulti sjúkrakassi án innihalds
G3 Bolus sjúkrabakpoki - StatPack
Læknataska - Doctor's - brún leðurtaska
StatPacks Quicklook AED sjúkrabakpoki
Wiz-Loc Hálskragi 

























